30.11.2008 | 21:15
Harðæri er líka góðæri, þegar frá líður
Fyrir nokkrum árum var ég í heimsókn hjá kunningja mínum og átti þar langt samtal við föður hans, sem er ekki í frásögur færandi, nema fyrir það að hann sagði mér merkilega sögu um hvernig fólk getur þegar frá líður getur glætt mestu harðindum einhverjum rómantískum og angurværum ljóma.
Hann hafði um árabil starfað við að aka fé til slátrunar og hitti því bændur og búalið á fjárbúum víða um suðurland og þekkti því margan mannin. Þetta vissi kona ein, öldruð mjög, sem þekkti manninn sem um ræðir og kom hún því á framfæri við hann ósk sinni um hvort hann gæti ekki útvegað sér svolítið pestukjöt. Kjöt af sauði sem, ef svo má að orði komast, ekki hefur fallið fyrir hendi slátrarans heldur hefur tekið sótt og þannig rölt áfram inn á hin eilífu beitilönd.
Kerlingin sem bar fram þessa einkennilegu ósk vissi tímana tvenna, skorti ekkert og lifði ágætu lífi. En einhverra hluta vegna er það eitthvað í eðli mannsins sem gerir það að verkun að maður glæðir oft gamlar minningar einhverjum ljóma og þar var hún engin undantekning.
Þennan viðbjóð neyddist hún í æsku til að leggja sér til munns, einfaldlega til að halda lífi! En hvað var þá svona gott við það? Ekki var það bragðið og ekki aðstæðurnar og harðindin. Af hverju í ósköpunum vildi hún komast í pestukjötið? Jú, það voru ekki minningarnar um bragðið, aðstæðurnar eða harðindin, heldur stemmingin! Fólkið stóð saman, beitti öllum tiltækum ráðum til að halda lífi í sér og sínum og sá vel um hvort annað. Það var það sem gamla konan hafði saknað úr æsku sinni og hafði vafið einhverjum angurværum ljóma sem hana langaði að upplifa á ný.
Ég óska engum þeim örlögum að verða að bjarga sér á þennan hátt en ég óska þess að við í framtíðinni getum litið til baka á sama hátt og pestukjötskerlingin og sótt eitthvað gott fyrir sálina í þau harðindi sem nú ríða yfir.
Hugsum vel um hvort annað gott fólk, því hvernig sem gengið fellur og vextirnir hækka, þá verðum við alltaf hér!
heidistrand
kari-hardarson

Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.