Færsluflokkur: Sjónvarp
13.8.2008 | 06:08
Valdarán Homers á Spáni?
Tilraunin var lævísleg, en hún komst upp áður en hann náði völdum...
Þessi euromynt fannst þegar talið var upp úr kassanum í verslun í bænum Aviles á Spáni nýverið. Ekki er um fölsun að ræða, heldur hefur ekta mynt verið breytt. Glæsilegt!
Sjónvarp | Breytt s.d. kl. 06:15 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
12.8.2008 | 13:31
Er einhver "veikur" á þínum vinnustað í dag?
Tímasetningin er skelfileg, þetta má alls ekki að gerast einmitt núna! Hvers á maður að gjalda? Núna yrði ég stimplaður sem svikari og letihaugur, bannsettur sófavermir og flöguæta!
Að hafa verið fullfrískur og ekki þurft að vera frá vinnu vegna veikinda er ekki alltaf af hinu góða. Jú, auðvitað er gott að vera vel frískur, en tímasetningin að verða veikur getur verið misgóð. Það er til dæmis hægt að detta í einhverja flensu þegar lítið er að gera á vinnustaðnum, veðrið er afleitt og engir stórviðburðir sendir í sjónvarpinu. En núna, ef maður yrði veikur einmitt í dag myndi margur vinnuveitandinn setja upp svip. Að alltaf hafa mætt í vinnuna í lengri tíma hvernig sem viðrar er ekki alltaf gott, sérstaklega ef maður veikist núna þegar ólympíuleikarnir standa sem hæst.
Í morgun var ég alls ekki hress þegar ég fór á fætur, ég blátt áfram þvingaði mig á fætur og í vinnuna. Ég ætla sko alls ekki að láta það spyrjast út að ég sé "veikur" heima að glápa á sjónvarp. Þetta er víst töluvert algengt annars og kostar þjóðfélagið vænar fúlgur í hvert sinn sem stórmót eru send í sjónvarpi.
Er einhver "veikur" á þínum vinnustað í dag?
Sjónvarp | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)

heidistrand
kari-hardarson
