Færsluflokkur: Dægurmál

Verður það strákur eða stelpa?

Verðandi foreldrar eru iðullega spurðir “vitið þið hvort það verður strákur eða stelpa?”. Allflestir kjósa að bíða fæðingarinnar og “ekki kíkja í pakkann” en sumir foreldrar vilja gjarnan vita hvors kyns er og spyrja þegar farið er í sónar.

Heyrst hafa ýmsar háfleygar kenningar um hvernig þeir sem hafa áhuga á slíku geti stjórnað því hvort barnið verður drengur eða stúlka þegar við getnað. Það eru allt frá næringarfræðilegum kenningum til samfarastellinga og jafnvel hugmynda um að ef búa á til stelpu eigi að nota gamalt sæði og nýtt sæði ef á að búa til strák. Þetta á þá að vera sökum þess að “strákarnir” eru fyrri til að týna tölunni en “stelpurnar” við náttúrulega geymslu á sæði en að þeir séu hinir sprækustu í nýframleiddri vöru (karlinn á samkvæmt þessu að "tæma" áður en lagt er í að búa til strák).

Það er líka til mögnuð kenning um að félagslegar aðstæður ráði miklu om hvors kyns verður. Hún gengur út á að manneskjan sé félagsvera og hafi lengst af hafst við í hópum. Ef hópnum stóð ógn af einhverju t.d. fæðuskorti, öðrum árásargjörnum hópum eða rándýrum, fæddust fleiri drengir sem þá gátu stundað veiðar og háð stríð og ef vel áraði fæddust fleiri stúlkur til þess að auka möguleika hópsins til að fjölga sér hraðar.

Ég hef stundum spáð í þessa síðustu kenningu og nokkuð oft komist að raun um að þetta geti kanski alveg passað, að í samböndum sem eru aðþrengd á einhvern hátt fæðist frekar drengir en stúlkur og öfugt.

Verðugt rannsóknarefni?


Valdarán Homers á Spáni?

Tilraunin var lævísleg, en hún komst upp áður en hann náði völdum...

Homer Carlos

Þessi euromynt fannst þegar talið var upp úr kassanum í verslun í bænum Aviles á Spáni nýverið. Ekki er um fölsun að ræða, heldur hefur ekta mynt verið breytt. Glæsilegt!


Er einhver "veikur" á þínum vinnustað í dag?

Tímasetningin er skelfileg, þetta má alls ekki að gerast einmitt núna! Hvers á maður að gjalda? Núna yrði ég stimplaður sem svikari og letihaugur, bannsettur sófavermir og flöguæta!

Að hafa verið fullfrískur og ekki þurft að vera frá vinnu vegna veikinda er ekki alltaf af hinu góða. Jú, auðvitað er gott að vera vel frískur, en tímasetningin að verða veikur getur verið misgóð. Það er til dæmis hægt að detta í einhverja flensu þegar lítið er að gera á vinnustaðnum, veðrið er afleitt og engir stórviðburðir sendir í sjónvarpinu. En núna, ef maður yrði veikur einmitt í dag myndi margur vinnuveitandinn setja upp svip. Að alltaf hafa mætt í vinnuna í lengri tíma hvernig sem viðrar er ekki alltaf gott, sérstaklega ef maður veikist núna þegar ólympíuleikarnir standa sem hæst.

Í morgun var ég alls ekki hress þegar ég fór á fætur, ég blátt áfram þvingaði mig á fætur og í vinnuna. Ég ætla sko alls ekki að láta það spyrjast út að ég sé "veikur" heima að glápa á sjónvarp. Þetta er víst töluvert algengt annars og kostar þjóðfélagið vænar fúlgur í hvert sinn sem stórmót eru send í sjónvarpi.

Er einhver "veikur" á þínum vinnustað í dag?


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband