Færsluflokkur: Vísindi og fræði
14.8.2008 | 10:48
Neikvætt hrós frá jákvæðu fólki
Er fólk sem kvartar mikið jákvætt og er fólk sem hrósar öllu í kring um sig í raun og veru neikvætt? Ef það liggur í eðli okkar að hafa orð á því sem sker sig út í tilveru okkar hlýtur fólki sem líður vel og er sátt við lífið að kvarta yfir því sem miður fer. Þá boðar sennilega ekki gott að eftir villt kynlíf fá að heyra “þú varst æðisleg!”, því það hlýtur þá að þýða “venjulega ertu alveg vonlaus”.
Ef satt reynist þá eru þetta náttúrulega frábærar fréttir fyrir okkur sem alltaf fáum að heyra hið gagnstæða, ekki satt?
13.8.2008 | 14:20
Verður það strákur eða stelpa?
Verðandi foreldrar eru iðullega spurðir “vitið þið hvort það verður strákur eða stelpa?”. Allflestir kjósa að bíða fæðingarinnar og “ekki kíkja í pakkann” en sumir foreldrar vilja gjarnan vita hvors kyns er og spyrja þegar farið er í sónar.
Heyrst hafa ýmsar háfleygar kenningar um hvernig þeir sem hafa áhuga á slíku geti stjórnað því hvort barnið verður drengur eða stúlka þegar við getnað. Það eru allt frá næringarfræðilegum kenningum til samfarastellinga og jafnvel hugmynda um að ef búa á til stelpu eigi að nota gamalt sæði og nýtt sæði ef á að búa til strák. Þetta á þá að vera sökum þess að “strákarnir” eru fyrri til að týna tölunni en “stelpurnar” við náttúrulega geymslu á sæði en að þeir séu hinir sprækustu í nýframleiddri vöru (karlinn á samkvæmt þessu að "tæma" áður en lagt er í að búa til strák).
Það er líka til mögnuð kenning um að félagslegar aðstæður ráði miklu om hvors kyns verður. Hún gengur út á að manneskjan sé félagsvera og hafi lengst af hafst við í hópum. Ef hópnum stóð ógn af einhverju t.d. fæðuskorti, öðrum árásargjörnum hópum eða rándýrum, fæddust fleiri drengir sem þá gátu stundað veiðar og háð stríð og ef vel áraði fæddust fleiri stúlkur til þess að auka möguleika hópsins til að fjölga sér hraðar.
Ég hef stundum spáð í þessa síðustu kenningu og nokkuð oft komist að raun um að þetta geti kanski alveg passað, að í samböndum sem eru aðþrengd á einhvern hátt fæðist frekar drengir en stúlkur og öfugt.
Verðugt rannsóknarefni?

heidistrand
kari-hardarson
