Færsluflokkur: Bloggar
30.11.2008 | 21:15
Harðæri er líka góðæri, þegar frá líður
Fyrir nokkrum árum var ég í heimsókn hjá kunningja mínum og átti þar langt samtal við föður hans, sem er ekki í frásögur færandi, nema fyrir það að hann sagði mér merkilega sögu um hvernig fólk getur þegar frá líður getur glætt mestu harðindum einhverjum rómantískum og angurværum ljóma.
Hann hafði um árabil starfað við að aka fé til slátrunar og hitti því bændur og búalið á fjárbúum víða um suðurland og þekkti því margan mannin. Þetta vissi kona ein, öldruð mjög, sem þekkti manninn sem um ræðir og kom hún því á framfæri við hann ósk sinni um hvort hann gæti ekki útvegað sér svolítið pestukjöt. Kjöt af sauði sem, ef svo má að orði komast, ekki hefur fallið fyrir hendi slátrarans heldur hefur tekið sótt og þannig rölt áfram inn á hin eilífu beitilönd.
Kerlingin sem bar fram þessa einkennilegu ósk vissi tímana tvenna, skorti ekkert og lifði ágætu lífi. En einhverra hluta vegna er það eitthvað í eðli mannsins sem gerir það að verkun að maður glæðir oft gamlar minningar einhverjum ljóma og þar var hún engin undantekning.
Þennan viðbjóð neyddist hún í æsku til að leggja sér til munns, einfaldlega til að halda lífi! En hvað var þá svona gott við það? Ekki var það bragðið og ekki aðstæðurnar og harðindin. Af hverju í ósköpunum vildi hún komast í pestukjötið? Jú, það voru ekki minningarnar um bragðið, aðstæðurnar eða harðindin, heldur stemmingin! Fólkið stóð saman, beitti öllum tiltækum ráðum til að halda lífi í sér og sínum og sá vel um hvort annað. Það var það sem gamla konan hafði saknað úr æsku sinni og hafði vafið einhverjum angurværum ljóma sem hana langaði að upplifa á ný.
Ég óska engum þeim örlögum að verða að bjarga sér á þennan hátt en ég óska þess að við í framtíðinni getum litið til baka á sama hátt og pestukjötskerlingin og sótt eitthvað gott fyrir sálina í þau harðindi sem nú ríða yfir.
Hugsum vel um hvort annað gott fólk, því hvernig sem gengið fellur og vextirnir hækka, þá verðum við alltaf hér!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
19.9.2008 | 14:24
Nú þarf bara að finna leið til að framleiða rafmagn á vistvænan hátt
Á Íslandi myndu umhverfisáhrif verða jákvæð ef notkun rafbíla myndi aukast, en því miður er t.d. drjúgur hluti raforku sem framleidd er á meginlandi evrópu framleidd með kolum eða olíu. Svo það má segja að þar gangi þessir bílar fyrir kolum...bömmer fyrir evrópska umhverfissinna...
|
Nýir rafbílar prófaðir á Íslandi |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
16.9.2008 | 19:12
Á Íslandi teljast Íslendingar saklausir uns sekt er sönnuð
Og á Íslandi teljast erlendir flóttamenn sekir uns sakleysi er sannað. Fordómar gagnvart flóttafólki ríða húsum eins og vant er á klakanum!
Megnið af þessu fólki er ekki að flýja til Íslands, það er að flýja frá heimalandi sínu og í sumum tilfellum frá landi sem það hefur þurft að flýja til frá heimalandi sínu. Og hvað er gert við það við komuna til Íslands? Jú, því er stungið inn bak við lás og slá sökum þess að það hefur ferðast með fölsuð vegabréf, nema það óski eftir á fá hæli á landinu, þá er það bara sett í stofufangelsi í Njarðvík. Fólk sem er ofsótt af stjórnvöldum heimalands síns á ekki alltaf hægt um vik við að ná sér í vegabréf á löglegan hátt...
Einfaldast að bara stinga þeim inn!
|
Vilja flóttamenn í varðhald |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
28.8.2008 | 21:48
Nágranni minn er skrímsli!
Það var ekki spurning um hvort, heldur hvenær hann myndi festast á filmu hann nágranni minn.

Það eru reyndar til allmargar ljósmyndir af honum blessuðum en margar hverjar heldur óskýrar og margir telja að þær séu falsaðar, skrítið.
Hitt er annað mál að hér í Östersund eru margir sem telja sig hafa séð skrímslið, sem nú er friðlýst, og til eru aldagamlar frásagnir um tilvist þess. Ég hef þó aldrei séð þennan meinta nágranna minn þessi tíu ár sem ég hef búið hér.
|
Stóravatnsskrímslið fangað á kvikmynd |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
25.8.2008 | 09:42
Ritstífla, annar kafli
Ólíkt því sem var skrifað í fyrsta kafla eru til þeir sem halda því fram að það sé ekki til neitt sem heitir ritstífla hjá rithöfundum. Hvernig myndi það annars líta út lögreglan fengi löggustíflu og gæti ekki löggað, rafvirkin tengistíflu og gæti ekki tengt og stærðfræðingurinn reiknistíflu og gæti ekki reiknað. Þetta gerist ekki, þetta eru allt atvinnumenn.
Þeir taka allir á aðstæðum eins og þær koma fyrir hverju sinni og leysa vandamálin eins og þau koma þeim fyrir sjónir hverju sinni. Ef rithöfundurinn lendir í vandræðum með að skrifa um það sem hann hafði ætlað sér frá upphafi, skrifar hann bara niður þau orð sem "koma til hans" þá stundina og notar þau í eitthvað annað. Hann veit að réttu orðin í það sem hann upphaflega ætlaði sér að skrifa koma til hans þegar "skrifgleðin sleppur út".
Bloggar | Breytt 16.8.2008 kl. 07:08 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
20.8.2008 | 08:48
Ég drekk til að gera fólk í kring um mig áhugavert
Margir snilldarfrasar hafa fallið af vörum fólks í kring um drykkju í gegn um tíðina. Hér koma nokkrir:
"Maður er ekki fullur ef maður getur legið á gólfinu án þess að halda sér í", sagði Dean Martin.
"Tveir snafsar eru of mikið, þrír of lítið", Finnskt orðatiltæki.
"Ef þú drekkur deyrðu, ef þú drekkur ekki deyrðu, best að drekka", Rússneskt orðatiltæki.
"Það var út af konu sem ég byrjaði að drekka, og ég hef ekki einu sinni haft vit á því að þakka henni fyrir það", sagði W C Fields.
"Eru ekki jólin eina skiftið sem maður drekkur sig fullan barnanna vegna?" sagði James Cameron.
"Á fullum maga situr glatt höfuð", Sænskt orðatiltæki.
"Ég drekk til að gera fólk í kring um mig áhugavert", sagði George Jean Nathan.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
17.8.2008 | 07:17
Það var náttúrulega vitað mál að hún væri ekki í lagi...
Það kemur mér ekkert á óvart að hún hafi reynt að rækta sér vin úr afgöngum af gömlum vini úr því að henni tókst ekki að ræna sér trúboða til að hafa félagskap af.
|
Skildi klónin eftir |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
15.8.2008 | 12:21
Rúmið á að fara!
Konan ætlar að breyta svefnherberginu AFTUR þar sem hjónarúmið passar ekki inn lengur. Rúmið er klætt með hvítu tauefni, er frá Ikea og safnar fullt af ryki og katthárum eftir kettina okkar (ég benti á þennan galla þegar við keyptum það, en hvað veit ég um innréttingar og stíl). Efnisfjandinn hljóp náttúrulega eftir fyrsta þvott og maður þurfti að taka á svo maður fékk skítabragð í munninn til að fá það til að passa (og það passar ekki samt). Það getur maður nú búið við finnst mér en, enn og aftur, hvað veit ég?????? Nú skal allavega druslan út (rúmið alltsvo, ekki konan) þessvegna ókeypis (enn á ný, rúmið ekki konan) Það eru bara gaflarnir og hliðarnar sem eiga að fara, ekki reiðvöllurinn (dýnurnar). Get hugsað mér skifti á einhverju skemmtilegu (ATH enga konu. ÉG Á NÓG MEÐ ÞESSA)
(Lausleg þýðing á smáauglýsingu sem mér var bent á á vefnum)
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
14.8.2008 | 21:09
Hamborgara með rasshárapels, franskar og kók takk
|
Baðaði sig í vaskinum |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
14.8.2008 | 10:48
Neikvætt hrós frá jákvæðu fólki
Er fólk sem kvartar mikið jákvætt og er fólk sem hrósar öllu í kring um sig í raun og veru neikvætt? Ef það liggur í eðli okkar að hafa orð á því sem sker sig út í tilveru okkar hlýtur fólki sem líður vel og er sátt við lífið að kvarta yfir því sem miður fer. Þá boðar sennilega ekki gott að eftir villt kynlíf fá að heyra “þú varst æðisleg!”, því það hlýtur þá að þýða “venjulega ertu alveg vonlaus”.
Ef satt reynist þá eru þetta náttúrulega frábærar fréttir fyrir okkur sem alltaf fáum að heyra hið gagnstæða, ekki satt?
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)


heidistrand
kari-hardarson
