Harðæri er líka góðæri, þegar frá líður

Fyrir nokkrum árum var ég í heimsókn hjá kunningja mínum og átti þar langt samtal við föður hans, sem er ekki í frásögur færandi, nema fyrir það að hann sagði mér merkilega sögu um hvernig fólk getur þegar frá líður getur glætt mestu harðindum einhverjum rómantískum og angurværum ljóma.

Hann hafði um árabil starfað við að aka fé til slátrunar og hitti því bændur og búalið á fjárbúum víða um suðurland og þekkti því margan mannin. Þetta vissi kona ein, öldruð mjög, sem þekkti manninn sem um ræðir og kom hún því á framfæri við hann ósk sinni um hvort hann gæti ekki útvegað sér svolítið pestukjöt. Kjöt af sauði sem, ef svo má að orði komast, ekki hefur fallið fyrir hendi slátrarans heldur hefur tekið sótt og þannig rölt áfram inn á hin eilífu beitilönd.

Kerlingin sem bar fram þessa einkennilegu ósk vissi tímana tvenna, skorti ekkert og lifði ágætu lífi. En einhverra hluta vegna er það eitthvað í eðli mannsins sem gerir það að verkun að maður glæðir oft gamlar minningar einhverjum ljóma og þar var hún engin undantekning.

Þennan viðbjóð neyddist hún í æsku til að leggja sér til munns, einfaldlega til að halda lífi! En hvað var þá svona gott við það? Ekki var það bragðið og ekki aðstæðurnar og harðindin. Af hverju í ósköpunum vildi hún komast í pestukjötið? Jú, það voru ekki minningarnar um bragðið, aðstæðurnar eða harðindin, heldur stemmingin! Fólkið stóð saman, beitti öllum tiltækum ráðum til að halda lífi í sér og sínum og sá vel um hvort annað. Það var það sem gamla konan hafði saknað úr æsku sinni og hafði vafið einhverjum angurværum ljóma sem hana langaði að upplifa á ný.

Ég óska engum þeim örlögum að verða að bjarga sér á þennan hátt en ég óska þess að við í framtíðinni getum litið til baka á sama hátt og pestukjötskerlingin og sótt eitthvað gott fyrir sálina í þau harðindi sem nú ríða yfir.

Hugsum vel um hvort annað gott fólk, því hvernig sem gengið fellur og vextirnir hækka, þá verðum við alltaf hér!


Ábrestir úr útlenskum kerlingum og sælir sósusullarar

"Það verða ábrestir úr útlenskum kerlingum í eftirrétt í dag..." er setning sem forsvarsmenn markaðsdeildar Ben & Jerry´s sáu ekki alveg fyrir sér að myndi virka sérlega vel og tóku þess vegna þá ákvörðun að nota ekki heldur brjóstamjólk í ísinn sinn.

En sælir eru sósusullarar og kátastur af þeim öllum er Hans Lochers, þó svo að illa gangi að afla þeirrar mjólkur sem hann þarf, og þó svo að mörgum þyki vafasamt sé hvort markaður sé fyrir sósunum og súpunum sem gera á úr þessu ágæta hráefni.

En sælir eru sósusullarar, því þeir mjólka sjálfir...


mbl.is PETA vill nýta brjóstamjólk í eftirrétti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nú þarf bara að finna leið til að framleiða rafmagn á vistvænan hátt

Á Íslandi myndu umhverfisáhrif verða jákvæð ef notkun rafbíla myndi aukast, en því miður er t.d. drjúgur hluti raforku sem framleidd er á meginlandi evrópu framleidd með kolum eða olíu. Svo það má segja að þar gangi þessir bílar fyrir kolum...bömmer fyrir evrópska umhverfissinna... 


mbl.is Nýir rafbílar prófaðir á Íslandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Á Íslandi teljast Íslendingar saklausir uns sekt er sönnuð

Og á Íslandi teljast erlendir flóttamenn sekir uns sakleysi er sannað. Fordómar gagnvart flóttafólki ríða húsum eins og vant er á klakanum!

Megnið af þessu fólki er ekki að flýja til Íslands, það er að flýja frá heimalandi sínu og í sumum tilfellum frá landi sem það hefur þurft að flýja til frá heimalandi sínu. Og hvað er gert við það við komuna  til Íslands? Jú, því er stungið inn bak við lás og slá sökum þess að það hefur ferðast með fölsuð vegabréf, nema það óski eftir á fá hæli á landinu, þá er það bara sett í stofufangelsi í Njarðvík. Fólk sem er ofsótt af stjórnvöldum heimalands síns á ekki alltaf hægt um vik við að ná sér í vegabréf á löglegan hátt...

Einfaldast að bara stinga þeim inn!


mbl.is Vilja flóttamenn í varðhald
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Lágt gengi krónunnar frábærar fréttir! Við erum bara of miklir bjálfar til að geta notfært okkur það!

Þetta er auðvitað það besta sem hefur gerst í sögu Íslensks ferðamanna- og útflutningsiðnaðar. Nú er tækifæri til að renna nýjum styrkum stoðum undir þessar greinar og reyndar þjóðarbúið allt.

Því miður varpa neysluvenjur okkar Íslendinga eins og venjulega löngum og ljótum skugga yfir tækifæri sem þessi. Sú sannfæring okkar að við þurfum alltaf að eiga það besta og nýjasta af öllu sem er sett á markaðinn veldur því að vöruskiftajöfnuðurinn verður oft á tíðum óhagstæður, þar sem innfluttningur á vörum sem yfirleitt eru algerlega óþarfar er gríðarlegur.

Það sem við þurfum núna er ný þjóðarsátt, um það að næsti mánuður eða kanski næsta ár eigi að vera "hvítt" ár hvað varðar neyslu. Á þessu "hvíta" tímabili eigum við bara að kaupa innfluttar vörur sem okkur eru bráðnauðsynlegar. Ef við svo eigum peninga afgangs sem brenna göt í vasana hjá okkur getum við bruðlað í innlenda framleiðslu.

Framleiðum og flytjum það út, sniðgöngum erlendar munaðarvörur og bruðlum Íslenskt! 


mbl.is Gengi krónunnar aldrei lægra
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Brjálaður maður með öxi í matvöruversluninni, heppinn að vera ekki á staðnum

Í byrjun vikunnar kom maður með öxi með sér inn í matvöruverslunina sem við verslum að jafnaði í hérna úti. Maðurinn sem hafði átt við geðræn vandamál í formi ofsóknaræðis að stríða um nokkurt skeið og var auk þess undir áhrifum gekk berserksgang og tókst að höggva og stórslasa tvær manneskjur sem urðu á vegi hans inni í versluninni áður en hann var yfirbugaður.

Við yfirheyrslur játaði hann að ásetningurinn var að drepa til að geta fengið hjálp við þeim geðsjúkdómi sem hrjáir hann. Þetta taldi hann vera eina leiðin til að vekja athygli á ástandi sínu þar sem heilbrigðisþjónustan hafði margoft vísað honum frá og ekki talið hann þurfa á hjálp að halda.

Þetta er án efa ekkert einsdæmi, hvorki hér í Svíþjóð né á hinum norðurlöndunum, þó svo að þessi lönd eigi það sameiginlegt að státa af mjög öflugu heilbrigðiskerfi að eigin sögn. Það er að vísu staðhæfing sem oft á tíðum byggir á hversu miklum hluta af skattatekjum er veitt til heilbrigðismála en ekki á hversu vel fjármunirnir eru nýttir. Niðurskurður í formi uppsagna á hæfu starfsfólki er staðreynd sem gerir það að verkum að þeir sem eftir eru þurfa að fást við sjúkdómsgreiningu og lækningar á færibandi. Þessi leið til sparnaðar í heilbrigiskerfinu er skammgóður vermir þar sem launakostnaður er aðeins lítill hluti af heildarkostnaðinum.

Óhjákvæmilega verður einhverjum með allvarlegan sjúkdóm vísað frá sökum þess að ekki hefur tekist að greina hann á fullnægjandi hátt á þeim stutta tíma sem starfsfólk hefur til ráðstöfunar.

Erum við að ganga í þessa gildru?


Þetta er bannað!

Þú veist að það er bannað, en freistingin er of stór.

Hvað ef..? Hvað ef, hvað? Hvað ef það kemst upp? Hvað ef maður kemst upp með það? Hvað? Hvað ef..?

Þig langar það samt svo mikið, bara gleyma öllu, og bara...bara gera það! Bara sleppa öllu, láta undan, gefa skít í allt sem þú hefur lært og veist að er rétt...

Þetta er bannað! Þú veist það! En nú er það of seint...þú brotnaðir, lést undan, ert fallinn fyrir freistingunni...fallinn engill.

Þú treystir ekki á sjálfan þig lengur, enginn getur treyst þér lengur...þú ert fallinn engill...


Nágranni minn er skrímsli!

Það var ekki spurning um hvort, heldur hvenær hann myndi festast á filmu hann nágranni minn.

Það eru reyndar til allmargar ljósmyndir af honum blessuðum en margar hverjar heldur óskýrar og margir telja að þær séu falsaðar, skrítið.

Hitt er annað mál að hér í Östersund eru margir sem telja sig hafa séð skrímslið, sem nú er friðlýst, og til eru aldagamlar frásagnir um tilvist þess. Ég hef þó aldrei séð þennan meinta nágranna minn þessi tíu ár sem ég hef búið hér.


mbl.is Stóravatnsskrímslið fangað á kvikmynd
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ritstífla, annar kafli

Ólíkt því sem var skrifað í fyrsta kafla eru til þeir sem halda því fram að það sé ekki til neitt sem heitir ritstífla hjá rithöfundum. Hvernig myndi það annars líta út lögreglan fengi löggustíflu og gæti ekki löggað, rafvirkin tengistíflu og gæti ekki tengt og stærðfræðingurinn reiknistíflu og gæti ekki reiknað. Þetta gerist ekki, þetta eru allt atvinnumenn.

Þeir taka allir á aðstæðum eins og þær koma fyrir hverju sinni og leysa vandamálin eins og þau koma þeim fyrir sjónir hverju sinni. Ef rithöfundurinn lendir í vandræðum með að skrifa um það sem hann hafði ætlað sér frá upphafi, skrifar hann bara niður þau orð sem "koma til hans" þá stundina og notar þau í eitthvað annað. Hann veit að réttu orðin í það sem hann upphaflega ætlaði sér að skrifa koma til hans þegar "skrifgleðin sleppur út".


Strákarnir okkar áttu þetta skilið!

Þeir stóðu sig eins og hetjur og við getum ekki verið neitt annað en stolt af þeim.

Það er meiriháttar að vera Íslendingur í Svíþjóð í dag, Svíarnir eru ánægðir með að smáþjóðin sem sló þá út í undankeppninni fyrir Ólympíuleikana komst alla leið í úrslitaleikinn! Það var að sama skapi ekki jafn gaman rétt eftir að við slóum þá út, þegar maður þurfti að læðast með veggjum í vinnunni og beygja sig undan hrákaslummunum á götum úti LoL

En Frakkarnir voru einfaldlega of sterkir í dag og kanski sagði reynsla þeirra af að spila í úrslitaleikjum á stórmótum til sín líka. Ég tek samt af heilu hjarta undir orð Guðmundar þjálfara, við töpuðum ekki gullinu, við unnum silfur! Áfram Ísland!

 


Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband